Færsluflokkur: Bloggar

Hvalir

  • Hvalir lifa í öllum heimsins höfum
  • Steypireyður er stærsta dýr jarðar
  • Háhyrningar eru grimmastir
  • Hvalir hafa góða heyrn
  • En mjög lélega sjón
  • Hvalir skiptast í tvo undirættbálka skíðishvali og tannhvali
  • Það eru til 80 tegundir af tannhvölum
  • En bara 11 tegundir af skíðishvölum
  • Sumir hvalir hafa skíði í stað tanna þá nefnast þeir skíðishvalir
  • Skíðin eru eins og lítil hár og í þeim festast smádýr
  • Tannhvalir hafa eitt blástursop  
  • Skíðishvalir hafa tvö blástursop
  • Hvalir hafa heitt blóð
  • Hvalir anda með lungunum
  • Karldýrið kallast tarfur, kvendýrið kallast kýr og afkvæmið kálfur
  • Búrhvalur getur verið 60 mínútur í kafi

 

 

 


Náttúrufræði

Í náttúrufræði var ég að gera glærukynningu. Ég fékk að velja eitt eldfjall til að gera glærukynningu um. Ég valdi Kverkfjöll af því að ég vissi ekkert um þau og enginn annar var með þau. Fyrst byrjaði ég á því að afla mér upplýsinga úr hefti sem ég fékk. Næst skrifaði ég textann (upplýsingarnar) á glærurnar. Síðan fór ég inn á gooogle og fann myndir, sem ég setti svo á glærurnar til að skreyta. Ég bjó til slide share aðgang af því að ég mundi ekki lykilorðið af slide share sem ég bjó til seinast. Mér gekk ágætlega en hefði mátt ganga betur og mér fannst þetta skemmtilegt verkefni.

Hér er glærukynningin mín!Grin

 


Heimildaritgerð

Ég var að gera heimildaritgerð um lífið á Íslandi á 13.öld. Ég byrjaði á að afla mér upplýsinga í Gásagátunni eftir Brynhildi Þórarinsdóttir og Snorri Sturluson og lífið á miðöldum eftir Birgi Loftsson. Ég fékk miða til að skrifa svör við spurningum og skrifaði síðan í tölvu. Þegar ég var búin að skrifa í tölvum fann ég myndir á google. þegar ritgerðin var tilbúin bjó ég til aðgang að box.net og setti ritgerðina þar inn.

Mér fannst þetta skemmtilegt verkefni og ég lærði helling t.d. að stelpur fengu ekki að fara í skóla og maður notaði jurtir til að setja lit í fötin.

Hér er heimildaritgerðin mínGrin

 


Photo story

 Við í 6.bekk erum búin að vera að vinna að Potho story myndband. Við lásum Það mælti mín móðir ljóðið inn á myndbandið en áður vorum við búin að finna myndir á google sem við notuðum líka. Egill-Skallagrímsson orti ljóðið þegar hann var sjö ára að aldri.Við lærðum að stofna youtube aðgang sem mér gekk mjög illa að gera Crying en síðan tókst þetta allt Grin

Þetta er myndbandið mitt Grin 

 


Eglu-ferð

  Þann 9.nóvember fórum ég og hinir krakkarnir í 6.bekk að skoða slóðir Eglu, Borg á Mýrum og í Reykholt.Tilgangur ferðarinnar var til að kynnast Agli og Snorra Sturluson betur.Við byrjuðum að fara með rútu til Borgarness og þar fórum við á Landnámssetrið. Þar fengum við að heyra um ævi Egils og sjá listaverk á sama tíma og þar fengum við líka að borða nestið okkar.Næst sáum við Brákarsund þar sem Brák fóstra Egils dó, það var næstu því við hliðin á setrinu. Skallagrímsgarður var líka í borgarnesi og þangað kíktum við líka. Þar voru Skalla-Grímur og Böðvar sonur Egils heygðir. Næst var ferðinni haldið á Borg á Mýrum, þar fengum við að skoða kirkju, svo bjó líka prestur þarna og svo var rosalega stór hóll sem við löbbuðum upp á. Sonartorrek var fræg stytta sem var fyrir utan kirkjuna. Síðasti áfangastaðurinn var  Reykholt.Fyrst hittum við konu sem fór með okkur inn í Reykholt þar fengum við að borða hádegismat. Síðan kom Geir Waage til okkar og fór með okkur í kirkju sem var á hæðinni fyrir ofan. Þar talaði hann við okkur um ævi Snorra Sturluson og talaði frekar mikið. Svo sýndi hann okkur bókasafnið, kirkjuna sem var fyrir utan, þar sem Snorri var jarðaður, virkið hans Snorra, Snorralaug og einhver göng og styttu af Snorra. Og Síðan fórum við heim með rútunni.Mér fannst þetta skemmtileg ferðGrin

Landafræði

Á haustönn var ég að vinna með norðurlöndin. Ég gerði mína fyrstu powerpoint-glærukynningu. Ég tók líka nokkur próf um landið sem ég valdi mér. Ég valdi Svíþjóð.Ég valdi það af því mér finnst það áhugavert land og mig langar að heimsækja það. Nú eru aðeins 3 dagar í foreldraviðtöl og þess vegna átti ég að klára glærukynninguna. Ég tíndi fyrst uppkastarblaðinu en það komst samt til skila. Ég átti líka að búa til svona bloggsíðu. Mér fannst gaman að búa til þessa bloggsíðu og gera glærukynningu, svo er ég líka strax byrjuð að blogga!Grin

 

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband